13. júlí, 2012

Fréttir um að efnavopn sé að finna í Sýrlandi hafa byrjað að birtast í vestrænum fjölmiðlum upp á síðkastið. Heimasíðan Activist Post varar við því að nú sé hugsanlega verið að ráðgera efnavopnaárás í Sýrlandi sem kenna eigi sýrlenskum stjórnvöldum um.
Tilgangurinn væri að gefa Bandaríkjunum og bandamönnum þeirra tylliástæðu til þess að hefja stríðsaðgerðir i landinu. Við könnumst við að efnavopnafréttir i aðdraganda Íraksstríðsins reyndust ekki á rökum reystar en voru þó notaðar til þess að réttlæta innrás inn í Írak.
Ef við ætlum að læra af reynslunni ættum við að taka fréttum tengdum efnavopnum í Sýrlandi með miklum fyrirvara.