Forsíða
Greinar
Straumar
Fréttir
Viðburðir
11.september
Alþjóðastofnanir
Andspyrna & Aktívismi
Álit & Skoðanir
Áróður og heilaþvottur
Blekkingar
Elítismi
ESB
Firring
Fjármál & Viðskipti
Fjölmiðlar
Furðufyrirbæri
Geimverur
Heimspeki
Hryðjuverk
Húmor
Internetið
Ísland
Ísrael/Palestína
Íþróttir
Launráð & Leyndarmál
Lausnir
Leynireglur
Líf & Heilsa
Lög & Regla
Mannréttindi
Mannskepnan
Meðvitund
Menning & Listir
Menntamál
Merkingarfræði
Náttúra & Umhverfi
Nýja heimsveldið
Ofbeldi & Fasismi
Opinber vettvangur
Orka & Auðlindir
Réttindi Dýra
Ritskoðun
Samgöngur
Spilling
Stjórnmál
Stórfyrirtæki
Stóri bróðir
Straumar & Stefnur
Stríð & Hernaður
Tónlist
Trúarbrögð
Tækni & Vísindi
Vígbúnaður
Vímuefni
Þróunarmál
Guðjón Heiðar Valgarðsson
Lausnir
30. desember, 2011
10 ástæður til að vera bjartsýn/n um áramótin
2012 verður ekki heimsendir. Það verður heldur ekki auðvelt. En það verður erfiðisins virði.

Við vitum vel að mörg þau efni sem við fjöllum um hér á gagnauga geta verið mjög sorgleg og niðurdrepandi. Það getur líka verið niðurdrepandi að fara í fjölskylduboð þar sem flestir í kringum mann vilja annað hvort ekkert við mann ræða um slík mál, eða gera lítið úr því sem þú segir. Það er niðurdrepandi þegar maður endar á að rífast við þá sem manni þykir vænt um, þegar maður veit hversu miklu púðri hefur verið í eytt í að forrita viðhorf þeirra.

Joe Bodolai, sem framleiddi Saturday Night Live og skrifaði Wayne's World gafst nýlega upp. Hér má sjá sjálfsmorðsbréfið hans og flestar ástæðurnar ættu að vera lesendum gagnauga kunnar.

Þetta er grafalvarlegt mál og það síðasta sem við á gagnauga viljum er að verða óbeint valdir að því að fólk ráði ekki við raunveruleikann lengur. Sérstaklega ekki þegar allt bendir til að við séum að verða vitni að einhverri stórkostlegustu alheimsbyltingu í mannkynssögunni.

Trúiði mér ekki? Kíkið inn og lesið þessa grein. Förum með jákvætt hugarfar inn í 2012.

Nr. 10 - Þú ert fiðrildi



Þetta fannst mér yndislega væmin setning til að byrja þessa grein. En ég var ekki bara að reyna að vera fyndinn, ó nei! Ég er með pælingu.
 
Horfðir þú á þessa mynd? Ef svo er þá kannastu við þessa pælingu. Ég verð alltaf jafn hneykslaður þegar fólk segir mér að hætta að pæla í þessum hlutum, ég muni ekki geta breytt neinu. Þetta fólk hefur greinilega ekki séð Butterfly Effect. Ef þú þarft upprifjun á þeirri pælingu getur þú horft á þennan trailer:




Við virðumst vera svo óendanlega skilyrt til að leita bara að skammtíma fullnægingum að við virðumst ekki sjá heildarmyndina, og hvernig allt sem við gerum í dag mótar framtíðina.

Ef við ímyndum okkur að við myndum enda í heimi þar sem allt hefði farið á versta veg, heimsstyrjöld með kjarnavopnum, fangabúðir fyrir mótmælendur, einhverri ofurveiru sleppt á mannkynið þar sem bara elítan hefur mótefnið og örflögur græddar í alla þrælana sem eru eftir. Segjum að þú sért fastur þarna en fáir fyrir einskæra heppni aðgang að tímavél. Hvað myndirðu gera?

Myndirðu ekki reyna að fara aftur í tímann til að reyna að koma í veg fyrir að þetta myndi gerast?

Svo hvað er að stöðva þig? Ef þá eitthvað?

Ótti?

Óttastu vini þína og fjölskyldu meira en slíka niðurstöðu? Ef ekki, gerðu allt sem þú getur til að fá
þau á þitt band. Sannleikurinn er þín megin.

Ef við hugsum þetta svona þá er augljóst að við getum ekki bara breytt einhverju, við getum ekki, ekki breytt einhverju!

Allt sem þú gerir mun hafa áhrif á framtíðina. Þú þarft bara að ákveða hvort þú viljir að þau séu góð, eða slæm. Eitt dæmi er að ef þér myndi takast að eyðileggja alvarlegt samband einhverra vina þinna, sem hefðu annars eignast börn, þá varst þú tæknilega séð valdurinn að því að þetta barn yrði ekki til. Ef það barn hefði sameinað heiminn þá varst þú tæknilega séð að koma í veg fyrir að heiminum yrði bjargað.

Þú myndir aldrei vita af því, því þú yrðir aldrei vitni að þeirri tímalínu.

Að sama skapi getum við gert svo margt jákvætt sem getur hrint af stað öðrum jákvæðum keðjuverkunum. Kannski póstaðir þú bara einhverju á facebook. Það vakti einhvern til umhugsunar sem kynnti sér málið og póstaði öðru svipuðu á sinni facebook. Það varð til þess að einhver hermaður sá það. Hann talaði um það við einhvern háttsettan og það varð til þess að hann óhlýðnaðist skipun um að taka þátt í einhverri myrkri aðgerð.

Þú fattar, þetta er eitt dæmi um mögulega útkomu, en ímyndaðu þér ef þú fengir bara eitt ár. Hvað póstaðirðu mörgum vídjóum? Hversu margir sáu það? Hvað náðirðu að tala við marga? Sýna mörgum heimildarmyndir? Sannfæra marga um að kynna sér þessi málefni?

Ef svarið þitt við því er 0, þá er árið 2012 tilvalið til að bæta úr því. Þú getur þá vitað að þú ert hrein viðbót við það einvalalið sem þegar er að gera allt sem í sínu valdi stendur til að redda þessu. Það eru margir klukkutímar í einum degi og ýmislegt hægt að gera.

Ég hef notað síðustu 7 ár í að sá eins mörgum fræjum og ég mögulega get án þess að tapa geðheilsunni. Ég lofa ykkur að það ber árángur og hefur borið árángur. Ég gæti nefnt svo mörg dæmi um áþreifanleg markmið sem ég hef náð sem hafa haft áhrif, en ég ætla að geima það fyrir aðra grein.

Vertu fiðrildi, hafðu áhrif, á meðan þú hefur tækifæri til þess. Ekki láta mýtuna um að þú getir það ekki stöðvað þig, því það er hennar eini tilgangur.


Nr. 9 - "Veldisvísisvöxtur"



Hafiði heyrt dæmisöguna um gaurinn sem vildi fá borgað fyrir eitthvað hjá einhverjum konungi (það eru til nokkrar útgáfur af þessari sögu) með einu hrísgrjóni á reit á skákborði, tvö á næsta reit, fjögur á þeim þriðja og þannig koll af kolli á alla reitina 64?

Ef svo er þá veistu að konungurinn hélt að það væri pínkulítið en komst að því að þetta væri meiri hrísgrjón en eru til í heiminum.

Annað dæmi. Ef það er einn gerill í flösku klukkan 11.00 og hann tvöfaldar sig á mínútu fresti. Flaskan er full klukkan 12.00. Klukkan hvað var hún hálf full?

Svarið er....

Klukkan eina mínútu í 12. Frekar augljóst ef þú hugsar dæmið afturábak, en margir "flaska" á þessu. Ein spurning sem vaknar, klukkan hvað myndu gerlarnir fatta að flaskan væri að fyllast?

Í þau 7 ár sem ég hef spáð í þessi mál hef ég séð fáránlega vakningu eiga sér stað. Þegar fólk vaknar fyrir þessum dulda raunveruleika og sér hversu grófar blekkingar hafa varpað skugga á líf okkar þá vill fólk gera eitthvað í því. Hver einasti nýji "meðlimur" byrjar að ráða aðra. Hver einasta manneskja er í tengslum við alveg lágmark, tugi annarra, og margar þúsundir einstaklinga. Því fleiri sem byrja að tala því meiri verður trúverðugleikinn.

Þá verður það ekki bara Gulli skrítni frændi, heldur Gulli frændi, Siggi í boltanum, Anna í bakaríinu o.sfrv. og verður erfiðara að afskrifa eitthvað, því fleiri sem þú berð traust til reyna að sannfæra þig um það.

Ef hver og einn sem er meðvitaður í dag nær að sannfæra bara einn í viðbót um hvað er í gangi þá höfum við tvöfaldað mengið okkar. Eruði að átta ykkur á því hversu hratt þetta getur gerst?

Flaskan er að fyllast. Það er erfitt að segja hversu margir eru "vaknaðir" enda nokkuð erfitt að skilgreina nákvæmlega hvað það þýðir. En gríðarlegur fjöldi er einhversstaðar dansandi á línunni og mjög margir eru mjög meðvitaðir um það sem er í gangi.

Þessir aðilar munu nota komandi ár til að beita sínum áhrifum. Sem leiðir okkur að næsta punkti:


Nr 8 - Það hafa aldrei jafn margir verið vakandi



Flest tölfræði og flestar skoðanakannanir sýna þetta. Gleymum því ekki að áróður áður fyrr var ennþá áhrifaríkari og mun erfiðara að fá aðra hlið á málinu.

Margir sjá mótmælin gegn Víetnam stríðinu og hippatímann sem hápunkt vitundarvakningu mannkyns og við höfum gleymt okkur í efnishyggju og græðgi síðan. Þetta er hreinlega ekki nákvæmt. Vissulega voru það spennandi tímar sem komust ansi nálægt því að koma á varanlegum breytingum. En með ótrúlegri hörku, þar á meðal morðinu á Robert Kennedy, Martin Luther King Jr. og John Lennon, auk kænsku fyrirtækja, tókst að friða nógu marga, og elítan hélt velli til dagsins í dag.

Árið 1965 var Gallup könnun sem sýndi að 24% Bandaríkjamanna töldu það vera mistök að senda herinn til Víetnam en 60% ekki. Það tók 6 ár af mótmælum, Milljón dauðsfalla í Bandaríkjaher og Vítenam þar til stuðningurinn var kominn í 28%

Það þýðir ekki að 70% hafi verið alveg vakandi, en hafa verður í huga að Bandaríkin voru að "tapa" stríðinu, sem var stór þáttur í þessari óánægju almennings, frekar en endilega upplýst afstaða gegn stríði.

Þegar ég byrjaði að skoða þessi mál fyrir 7 árum var bókstaflega erfitt að finna skoðanasystkin, og í raun mun auðveldara að framleiða þau. Sem er það sem ég hef reynt síðan. Í dag sér maður ekki frétt um 11.september án þess að ummælin við fréttina séu full af fólki sem bendir á lygana um þann atburð.

Eftir hrun eru líka margir mun meðtækilegri og opnari. Sérstaklega hér á Íslandi. Við getum auðveldlega sannfært þessa þjóð um hvað er í gangi. Það þarf bara smá þrautseigju í viðbót, en mjög margir eru alvarlega farnir að koma til.

Til marks um það höfum við verið að fá nokkuð stöðugt flæði af um þúsund gestum á síðuna okkar á dag síðasta ár.

Fullt af hermönnum eru vaknaðir og að vakna. Sama má segja um yfirmenn í Pentagon, lögregluna og jafnvel heilu þjóðirnar. Þessi snjóbolti mun bara koma til með að stækka.


Nr. 7 - Elítan er að miða mjög hátt, hver segir að það muni takast?

Hugsaðu þér hvað það eru margir gráðugir hálfvitar sem hafa hingað til tekið þátt í þessu á meðan þeir gátu horft framhjá viðbjóðnum sem þeir voru beint eða óbeint að styðja, sem eru samt ekki næstum því nógu klikkaðir til að vilja taka þátt í þeim öfgakenndu fasistahugmyndum sem þessir brjálæðingar á toppnum vilja koma á?

Því lengra sem þeir ganga í átt að þessum markmiðum því meiri verður andstaðan.

Elítan er valdamikil og kröftug, en hún er ekki alvald! Ekki ennþá að minnsta kosti. Ef svo væri þá værum við í fangelsi núna! Þessi plön treysta á að smám saman verði hægt að leiða fólk inn í þessa dystópíu, og að engum muni takast að stöðva það.

Þetta eru megalómanískir geðsjúklingar. Áttið ykkur á því. Við vitum hvar þau heita! Við vitum hvaða stofnanir þau nota! Við vitum hvaða aðferðir þau nota og við getum notað þetta gegn þeim.

Þeir sem eru fullir vonleysi átta sig ekki á því að það er nákvæmlega það sem þeir treysta á. Sá sem ekki hefur neina von um breytingar hefur ekki ástæðu til að "eyða" tímanum sínum í að reyna.

Það eru fullt af öflum, allsstaðar að í heiminum að vinna gegn þessum markmiðum og afhjúpa þau.

Annað, er að með því að hafa náð svona mikilli umræðu um þessa hluti er þegar búið að gera það erfiðara fyrir þá að selja fólki hugmyndir sínar. Til að mynda hefur verið varað við örflögunum í tugi ára og myndu eflaust renna tvær grímur á þá sem hingað til hafa hlegið að slíkum áhyggjum, ef skylda ætti fólk til að fá slíka örflögu.

Þetta eru bara gamlir dólgar sem eru orðnir virkilega örvæntingarfullir. Þeir sjá heimsstyrjöld sem sína einu von til að halda völdum sínum og telja sig hafa engu að tapa. Það er ekkert sem segir að þessi áform muni takast. Þú getur gert þitt til að koma í veg fyrir það á hverjum degi. Notaðu facebook, notaðu reddit og jafnvel twitter. Ekki vera feiminn við að pósta samsæriskenningum og fá mótlæti. Það er smávægilegt gjald fyrir þau áhrif sem þú munt hafa.


Nr. 6 Ron Paul



Ron Paul er kominn með forskot í forkjöri repúblikana í Iowa, en það er lykil vígvöllur í þeirri baráttu. Sjá frétt hér

Ef þið hafið ekki heyrt um þennan mann og hvað hann stendur fyrir þá ættuði að hlusta á hann.






Þú þarft ekki að vera sammála honum um allt. Það sem skiptir máli er hann með aðalatriðin algjörlega á hreinu. Hann er á móti stríðunum, móti Patriot Act, móti Federal Reserve og móti afskiptum ríkisins af einkalífi fólks. Allir sem reyndu að segja fólki að Obama væri feik reyndu að benda á þennan i staðinn. Framboð hans hefur farið á ótrúlegt flug og bara það að hann er á staðnum og fær að koma sínu inn í umræðuna er jákvætt fyrir heiminn.

Hér er svo óborganleg klippa frá Jon Stewart sem fjallar um hvernig fjölmiðlar hafa látið eins og hann sé ekki til.




Nú rétt í þessu viðurkenndi FOX news í fyrsta skipti að Ron Paul væri með forskot í kapphlaupinu:



Nr. 5 OCCUPY



Það gerðist loksins að upp kom stór, skipulögð, vel skilgreind, stöðug, friðsamleg mótmælahreyfing gegn spillingu bankanna og misskiptingu heimsins. Þetta eru einhver mikilvægustu skilaboðin sem hægt er að færa fólki. Þessi hreyfing er bara að fara að stækka á árinu og aðlaga strategíu sína að aðstæðum. Þá verður erfiðara fyrir fjölmiðlana að hunsa skilaboðin.

Áherslan á 99% er virkilega sterk og mótmælendurnir eru sameinaðir gegn demókrötum og repúblikönum. Það er eitthvað sem hefur tilfinnanlega vantað í margar mótmælahreyfingar. Þessi boðskapur er að dreifast út hratt og ekki hjálpar gróft lögregluofbeldi málstað yfirvalda. Þar ber hæst að nefna hrottaleg árás á Scott Olseen, fyrrum hermann í Írak sem hlaut heilaskadda þegar lögreglumaður henti í hann táragasbrúsa. Þegar aðrir reyndu að koma honum til aðstoðar kastaðia lögreglumaðurinn (ekki víst að sé sá sami samt, en maður leyfir sér að giska) flash sprengju innan um hópinn, Virkilega til fyrirmyndar:




Meira um "vinnubrögð" lögreglu. Getiði fundið svona myndbönd frá Líbýu fyrir mig? Og þá á ég ekki við hrikaleg gæði af skothvellum og fólki að hlaupa. Ég skal svara því fyrir ykkur. Nei, það getið þið ekki, því ekkert svona átti sér stað í Líbýu. Einu "mótmælin" voru vopnaðar árásir gegn saklausum borgurum, lögreglustöðvum og öryggisbyggingum.



Hvenær fara Sameinuðu Þjóðirnar að gera ályktanir um þetta ofbeldi gegn friðsælum mótmæli? sem öfugt við ásakanir gegn Líbýu og Sýrlandi, er hægt að sanna.

Nr. 4 - Lygarnar um stríðið í Líbýu munu verða afhjúpaðar


Það er nánast útilokað að sú grófa blekkingarherferð sem fór fram til að sannfæra fólk um nauðsyn "íhlutunar" í Líbýu muni standast tímans tönn. Þegar hafa fjölmargir fjölmiðlamenn komið fram og sagt allt aðra sögu en þá sem við vorum mötuð með.

Fyrir innrásina var Líbýa framsæknasta, lýðræðislegasta, fallegasta og best setta velferðarríki í Afríku og þótt víðar væri leitað. Einhverjum kann að þykja þetta ýkjur en svona getur áróður virkað. Áhrif hans eru þó mest megnis tímabundið og það verður erfitt fyrir þá að verja þessa lygasögu. Það munu koma út góðar heimildarmyndir sem afhjúpa raunveruleikann bak við stríðið. Það munu fleiri hneykslismál koma í ljós og almenningur mun snúast gegn þessum aðgerðum.

Það tók tíma með Víetnam stríðið og það tók tíma með Írak, það mun taka smá tíma með Líbýu, en þegar það gerist mun valdaklíkan vera máluð út í horn. Sú ólga sem er í samfélaginu vegna efnahagsmála mun verða efld með sterkri friðarhreyfingu. Gleymum því ekki að fólk vill ekki stríð, það féllst bara á þessar aðgerðir vegna þess hve árángursrík áróðursherferðin var.

Þegar þessar lygar hafa verið afhjúpaðar almennilega, og það mun gerast fljótt, mun elítan, demókratar og repúblikanar eiga í fá hús að vernda.

Ef þú ert lítið búinn að setja þig inn í málið þá mæli ég með greininni minni.

"Já ég er að segja að þetta séu allt lygar"

Ef þú ert klár í ensku mæli ég frekar með ensku útgáfunni, en hún var gerð tveimur mánuðum síðar og var uppfærð út frá því.

"Yes, I'm saying that it's all lies"

Ef ég ætti að mæla með einum kafla í þessari grein myndi ég mæla með að að þú lesir kommentin við ensku greinina, þrátt fyrir að flestir fari í lestur greinarinnar með ranghugmyndir komu þeir út þakklátir mér og hrósa greininni í hástert.

Ef þú nennir því ekki einu sinni, má ég þá mæla með þessari ræðu hennar Lizzie Phelan, sem fór á staðinn:





Nr. 3 - White Dragon Society



Ef þú hefur ekkert heyrt um þetta mál, þá mun ykkur eflaust þykja þetta afar áhugavert, eins og mér. Ég heyrði fyrst um þetta árið 2006, en kannaði málið lítið. Nú hinsvegar hef ég fundið nokkrar ástæður sem gefa til kynna að þetta megi taka alvarlega. Ef það reynist rétt er það mjög jákvætt.

Kíkjum á þetta mál.

Við skulum fyrst hlusta á Benjamin Fulford, færa valdaklíku heimsins lokaviðvörun frá þessum samtökum. Þið kunnið að hugsa, hvers vegna myndi ég trúa þessum geðsjúklingi, en ég mæli með að lesa þennan kafla til enda:




Áður en við afskrifum þetta skulum við skoða frétt sem fór lítið fyrir þegar hún kom fyrst út, eins og er iðulega tilfellið með flestar dularfullar fréttir sem gætu komið elítunni í klandur. 134.5 milljarða bandaríkjadollara í ríkisbréfum voru gerð upptæk á landamærum Ítalíu og Sviss. Þetta er svimandi upphæð, og væri stærsta peningafölsunarmál sögunnar. Samt heyrðist ekki múkk um málið frá stórum miðlum, nema í undantekningartilvikum. Hér má sjá eina frétt frá Natoinal Review  Hér heyrum við Max Keiser ræða um þetta.



Hér má sjá Glenn Beck á Fox hneykslast á þessu. Já, hann er hálfviti, já þetta er á Fox, en fréttin er rétt og hneykslanin réttlát.



En hvað hefur þetta með Benjamin Fulford að gera?

Það er þarna sem þetta mál fer að verða virkilega áhugavert.

Hér er þriðja púsluspilið, lögsókn "Dragon fjölskyldunnar" og Neil Keenan gegn... tja, öllum helstu spilurunum í því samsæri sem heimurinn stendur frammi fyrir. Hér er eina meginstraums umfjöllunin um þetta mál. Ég mæli með að lesa þessa frétt í heild sinni, en hér eru lykilatriðin:

 
  Keenan claims the conspiracy began with the illegal detention of two Japanese citizens, Akihiko Yamaguchi and Mitsuyoshi Watanabe, and the seizure of $134.5 billion in bonds they were holding in Italy, in June 2009.

The 111-page federal complaint involves a range of entities common to conspiracy theorists, including the Vatican Illuminati, the Masons, the "Trilateral Trillenium Tripartite Gold Commission," and the U.S. Federal Reserve.
     Plaintiff Neil Keenan claims he was entrusted in 2009 with the financial instruments - which included U.S. Federal Reserve notes worth $124.5 billion, two Japanese government bonds with a combined face value of $19 billion, and one U.S. "Kennedy" bond with a face value of $1 billion - by an entity called the Dragon Family, which is a group of several wealthy and secretive Asian families.
    
"The Dragon family abstains from public view and knowledge, but, upon information and belief, acts for the good and better benefit of the world in constant coordination with higher levels of global financial organizations, in particular, the Federal Reserve System," Keenan claims.

Other defendants include UN General Secretary Ban Ki-Moon, Former Italian Prime Minister Silvio Berlusconi, Giancarlo Bruno, who is identified as head of the banking industry for the World Economic Forum, Italy's ambassador to the UN Cesare Maria Ragaflini, Ray C. Dam, president of the Office of International Treasury Control, and David A. Sale, the deputy chief of the council for the cabinet of the OITC.

Ertu farin/n að sjá einhverja mynd út úr þessu?

Af hverju var engin umfjöllun um þetta peningasmygl?

Ef þú getur ekki svarað því, myndu þá að þegar maður hefur finnur engin rök til að verja skoðanir manns þýðir það yfirleitt að þær séu rangar.

Af hverju ekki?

Augljóslega er einhver að fela eitthvað og þessi einhver getur komið í veg fyrir að allir stóru fjölmiðlar fjalli um risastórt hneykslismál. Síðan kemur þetta?

Hér er önnur frétt frá jaðarmiðli um þetta sama mál "The lawsuit to end financial tyranny"




En hvað er fyrir þessu? Hvað segir wikipedia og svoleiðis? Þar er ekkert um White Dragon Society, en þó sitthvað um Black Dragon Society, sem er annað nafn á sömu reglu. Hér er wikipedia greinin

Þar er ljóst að þessi samtök hafa ríka forsögu, hafa gengið í gegnum mörg tímabil og verið viðloðandi mörg stríð og byltingar.

The Kokuryūkai was founded in 1901 by Uchida Ryohei, and was descended from the Genyōsha. (Uchida was a follower ofGenyōsha founder Mitsuru Toyama.) Its name is derived from the Amur River, called Heilongjiang or "Black Dragon River" inChinese (黑龍江?), read as Kokuryū-kō in Japanese. Its public goal was to support efforts to drive the Russian Empire out of east Asia, south of the Amur River.

The Kokuryūkai initially made strenuous efforts to distance itself from the criminal elements of its predecessor, the Genyōsha. As a result, its membership included Cabinet Ministers and high-ranking military officers as well as professional secret agents. However, as time passed, it found the use of criminal activities to be a convenient 'means to an end' for many of its operations.

The Society published a journal, and operated an espionage training school, from which it dispatched agents to gather intelligence on Russian activities in Russia, Manchuria, Korea and China. It also pressured Japanese politicians to adopt a strong foreign policy. The Kokuryukai also supported Pan-Asianism, and lent financial support to revolutionaries such as Sun Yat-sen, and Emilio Aguinaldo.


Það er athyglisvert að lesa um Sun Yat-Sen, en hann virðist hreint ekki hafa verið svo slæmur gæi.


Sun Yat-sen (12 November 1866 – 12 March 1925)[1] was a Chinese revolutionary. As the foremost pioneer of Nationalist China, Sun is referred to as the "Father of the Nation" (國父) in the Republic of China, and the "forerunner of democratic revolution" in the People's Republic of China. Sun played an instrumental role in the overthrow of the Qing dynasty during theXinhai Revolution. Sun was the first provisional president when the Republic of China was founded in 1912 and later co-founded the Kuomintang (KMT) which he served as its first leader.[2] Sun was a uniting figure in post-Imperial China, and remains unique among 20th century Chinese politicians for being widely revered amongst the people from both sides of theTaiwan Strait.


Although Sun is considered one of the greatest leaders of modern China, his political life was one of constant struggle and frequent exile. After the success of the revolution, he quickly fell out of power in the newly founded Republic of China, and led successive revolutionary governments as a challenge to the warlords who controlled much of the nation. Sun did not live to see his party consolidate its power over the country during the Northern Expedition. His party, which formed a fragile alliance with the Communists, split into two factions after his death. Sun's chief legacy resides in his developing a political philosophyknown as the Three Principles of the People: nationalism, democracy, and the people's livelihood.

 
Það er þó ekki mín ætlun að mæra þessi leynilegu samtök of mikið, en ég hef enn ekki ríka þekkingu á sögu þeirra. Þau virðast hinsvegar vera til, og þau virðast, vera ansi öflug og samkvæmt Fulford, búin að fá nóg. Hér eru hans röksemdafærslur fyrir því hvers vegna þú vilt frekar halda með þeim, heldur en hinni vestrænu bankaklíku.

"What the white dragon society is fighting for"

Þess má geta að Fulford náði einu sinni viðtali við sjálfan David Rockefeller:




Hér eru fleiri viðtöl þar sem hann talar um þessi samtök og hvað er í gangi.




Viðtal við David Wilcock




Kafli 1 af 4 en þið finnið afganginn á tjúbinu. Hér er svo mjög nýlegt viðtal við hann sem ég mæli með að hlusta á.




Hann svarar í þessum viðtölum tveimur spurningum sem mér fannst mikilvægt að fái að koma fram. Fyrsta spurningin og kannski helsta ástæðan fyrir að ég gaf ekkert sérstaklega mikið fyrir þetta, var hversvegna hann væri sá eini sem væri að tala um þetta.

Nú hef ég fylgst með mörgum "alternative" hugsuðum mjög lengi og myndi áætla að einhver þeirra hefði pikkað upp á þessu og fjallað um það. Hann segir allavega að enginn meðlimur samtakanna tali um þau, enda leyniregla, af ótta við að lenda í að vera tekinn af lífi. Fulford segist sjálfur hafa lent í morðtilræðum og að samstarfsfélagi hans hafi verið myrtur. Hann hafi verið fenginn til að koma skilaboðum frá þeim til vesturlanda, gegn því að fá inngöngu í samtökin og vernd þeirra. Hann hafði þegar verið búinn að fá hótanir fyrir störf sín og talað gegn elítunni opinskátt, svo hann hafði litlu að tapa.

Annað var að sumir velta fyrir sér hvers vegna hann selji aðgang að síðunni sinni, en gjarnan er slíkt notað til að draga úr trúverðugleika einstaklinga, láta sem þeir séu peningaplokkarar. Hann segir að samkvæmt japönskum lögum sé bannað fyrir hann að taka við frjálsum framlögum. Hann þurfti eins og aðrir að borga reikninga, og þetta sé hans leið til að geta framfleitt sér. Hann tekur einnig fram að það eina sem þú þurfir að gera til að fá ókeypis aðgang að síðunni hans sé að senda honum fyrirspurn í gegnum e-mail. Látum þetta duga í bili um þessi samtök, en ég hvet ykkur til að kynna ykkur málið betur.

Eitt er allavega mjög áberandi í því sem hann er að segja, ekki hafa áhyggjur. Það eru hjól farin að snúast niður ákveðin veg og áfangastaðurinn er í augsýn. Þessi samtök vilji hætta stríðunum, koma fólki í skjól, gefa fólki mat og vernda umhverfið, og þeir vilja þessa krumpuðu elítu kalla í burtu.


Nr.2 Internet aktivistar




Internetið er enn til staðar og það er enn opið þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að hefta það frjálsa fræði upplýsinga sem þar hefur, samkvæmt sumum, fengið að viðgangast allt of lengi. Wikileaks hafa reyndar reynst talsverð vonbrigði, en maður átti von á fleiri "sprengjum" frá þeim. Margt af þessu er svo mikill tittlingaskítur að þetta er eins og úr slúðurblöðunum. Eitthvað þessi kallaði þennan feitan dæmi. Annað eru orð diplómata um einhver málefni og þau orð gjarnan sett upp sem staðfesting á því að þau séu sönn, sbr. aróður gegn Íran. Mikilvægt er að vera vakandi fyrir því að hreyfingar sem þessar séu ekki teknar gíslingu af áróðursöflunum.

Anonymous er önnur slík hreyfing og mátti sjá hvernig þau reyndu að spila inn á þessa hreyfingu. Léleg feik myndbönd með hálfvitum að bulla voru sett upp og merkt sem anonymous vídjó, um hvernig Líbýumenn þyrftu aðstoð NATO. Ef það er eitthvað sem Anonymous hafa sýnt, þá er það að þar er fólk með djúpstæðari skilning á þeim blekkingum sem við stöndum frammi fyrir en svo að þau falli fyrir einhverjum alheimsbyltingarskrípaleik, sem notaður er til að slátra saklausu fólki í skjóli nætur. Hér sjáum við svona bull vídjó og svo önnur, sem eru mun líklegri til að vera frá þeim:





Þetta er feik. Gjörið svo vel að horfa á þetta frekar:





Ég er internet aktivisti. Þú ert internet aktivisti. Ef þú vilt allavega. Við þurfum ekkert að kunna að hakka okkur inn á tölvurnar í Pentagon til að geta gert gagn á netinu. Við höfum öll mús og við höfum öll lyklaborð. Það sem ég hef verið að gera með góðum árangri er að búa til svona litlar "meme" myndir á netinu, og dreifa þeim í gegnum reddit. Með því einfalda skrefi að setja texta ofan á myndir geta einföld skilaboð náð mikilli dreifingu. Sérstaklega ef þau eru ögn fyndin að auki.

Hér eru nokkur dæmi um það sem ég hef verið að dunda mér við:




Svo bjó ég til þennan "Contextually Unaware Alien Visitor"






Þessir tveir fóru í efsta sætið á r/trees, fyrri með 738 og hinn með 1327.





Reyndar ekki image meme, en þessu lenti ég í nýlega og þetta fékk 996 upvote á r/conspiracy, sem er eitt hæsta skor sem færsla þar hefur fengið.



Þetta skaust beint efst á r/conspiracy:







Þessi færsla undir fyrirsögninni "Þar sem allt annað hefur klikkað" fékk um 670 stig á conspiracy, en venjulega duga um 50-70 til að komast efst þar:






Good Guy Greg um samsæriskenningar:




Scumbag Steve um sama málefni:



Sæti samsæriskisinn:




Þetta fékk yfir 1000 upvote á r/conspiracy og fór í 3.sæti á OWS. Athugið að með þessu getur maður beinlínis haft áhrif á hugsanagang fjölmargra innan þessarar hreyfingu. Munið butterfly effect, áhrifin sjást kannski ekki strax, en til lengri tíma litið munu öll svona vinna skila árangri:




Fyrsta sæti á r/conspiracy með 250 stig:






430 stig á conspiracy, rakleiðis í fyrsta sæti, daginn sem Gaddafi var drepinn (eina tilraunin sem virkaði til að vinna gegn þeirri múgæsingu sem kom upp þann dag, með hálfvitum sem héldu að þetta væru fréttir til að fagna)




Þetta var eitt fyrsta svona sem ég prófaði, og árangurinn var augljós, en það fór á forsíðu r/trees og fékk þar hin eftirsóttu 420 stig.



Ef þið viljið spreita ykkur á svona þá mæli ég með að nota ímyndunaraflið.

Ég hef verið að nota þessa síðu: Wigflip

En þar er boðið upp á að hýsa myndina á imgur, sem er yfirleitt sniðugast. Síðan er bara að skrá sig á reddit og fara að prófa. Þetta er einfalt og gaman, sérstaklega ef vel gengur og margir dreifa. Auk þess er þetta mjög áhrifaríkt. Fólk tengir við húmor og einföld skilaboð.

Bara nýlega hefur reddit síðan orðið mun meira vakandi, en hún er ágætis mælikvarði á það hvar frekar meginstraumskenndar hugsanir almennings eru staddar. Nú er t.d. Ron Paul á forsíðu r/politics nánast daglega og yfirleitt í jákvæðu ljósi, en það er stutt síðan og einmitt eftir það fór hann að taka forskotið í forkjörinu.

Því miður virðist almenningur þar, eins og reyndar sýnir sig almennt í samfélaginu, alveg gersamlega heilaþveginn um Líbýu. Enda voru stórir kaflar í áróðursleikriti CIA spilaðir út á þeirri síðu. Síðan er orðinn mikilvægur vígvöllur í upplýsingastríðinu og áróðursöfl er fullkomlega meðvituð um það líka.

Nú síðast hefur vakið athygli herferð á reddit gegn Godaddy.com annars vegar og þingmönnum hinsvegar vegna stuðning við "SOPA" eða "Stop Online Piracy Act". En sú lagasetning myndi ganga frá internetinu eins og við þekkjum það.

Getum við ekki breytt neinu? Go Daddy tapaði 72.000 áskriftum á mettíma! Örfáum dögum síðar drógu þeir stuðning sinn við frumvarpið til baka!

Hugsið ykkur!

Næst munu þeir fara eftir pólitíkisum? Það sem verður gert snilldarlega er að velja þingmennina handahófskennt og rústa þeim, einum í einu. Þannig vita allir hinir hvað þeir eiga í hættu.

Hér má sjá umfjöllun CBS um þessa herferð

Hér má sjá grein Atlantic Wire "Reasons not to upset Reddit"

Þetta er tungumál sem gröðu kapitalistapeðin í keðjunni skilja. Þeir tapa peningum, og þá fara þeir að gráta.

Hér frétt frá í fyrradag um starfsemi Anonymous, en þeir hyggjast leka sönnungargögnum um grófa glæpi öryggisstofnunar í BNA.

Hver og einn svona leki hefur áhrif. Hver einasta manneskja sem uppfærir skilning sinn á heiminum nær raunveruleikanum er sigur. Við höfum náð gífurlegum árangri síðustu ár og sá árangur þýðir að hvert einasta markmið elítunnar verður erfiðara að framkvæma, því það eru fleiri að streitast á móti.

Ómögulegt er að segja hversu miklum árangri svona skilar, en undir yfirborðinu kraumar spenna, um hvort náist að gera opinberar nýjar sannanir fyrir glæpum sem almenningur myndi hreinlega trompast yfir að sjá. Jarðvegurinn er undirbúinn fyrir slíka uppljóstrun og við munum amk sjá einhver stór hneykslismál verða til á komandi ári.

Enn og aftur, það er mjög mikilvægt að þú sért fullkomlega ófeimin/n við að nota facebookið þitt til að koma þessum hugmyndum til annarra. Notaðu reddit, jafnvel twitter. Þó það sé það eina sem þú gerir þá ertu að minnsta kosti að gera gagn. Við þurfum að taka til á þessari plánetu og það er miklu auðveldara ef við hjálpumst öll að.


Nr.1 - Við erum á bandi kærleikans



Sama hvar í alheiminum þú ert staddur. Þú vilt vera á bandi kærleikans. Þú vilt vera á bandi sannleikans. Á meðan þú veist innra með þér í hjarta þínu að það er tilfellið þá þarftu ekkert að óttast.

Ég er sannfærður um að alheimurinn er miklu flóknari en við skiljum og í honum vinni öfl sem við höfum ekki hugmynd um hvernig virka. Ef það er eitthvað sem ég held að nánast allar verur skilji þá er það munurinn á kærleika og ótta. Kærleikurinn er sterkasta aflið í alheiminum. Þetta veistu í hjarta þínu.

Heldurðu að það sé möguleiki að ótti sé dómínerandi afl í alheiminum? Það er ekki til í myndinni.

Svo lengi sem þú ert á bandi kærleikans þá munu öll önnur öfl í alheiminum sem líka eru á bandi kærleikans vera með þér í liði. Þú hefur valið þér sterkustu bandamennina í alheiminum sem þú býrð.

Það er alrangt, og byggist á steríótýpískum ranghugmyndum, að "samsæriskenningasmiðir" séu nú að fríka út yfir heimsendi 2012. Ég veit um afar fá sem telja það vera tilfellið.

Viljiði vita hvað flestir eru að segja?

Haldið ykkur fast, haldiði ró ykkar, ekki vera hrædd, verið hugrökk og staðföst. Það versta er að ganga yfir og eftir það verður heimurinn nálægt þeirri paradís sem hann á að vera.

Við skulum bara fara yfir þá "allra klikkuðustu" og sjá hvað þeir eru að segja:

Hér heyrum við t.d. í David Icke, en hann segir að ár hinna miklu breytinga sé 2016, ekki 2012.




James Gilliland talar um málið:




(Fyrsti kaflinn inniheldur áhugaverður pælingar um Guð og trúarbrögð, en á lítið við um þessa grein)

Allir sem segjast vera í sambandi við Pleiadians eða aðrar geimverur færa mjög svipuð skilaboð. Hvort sem maður "kaupir þetta" eða ekki þá er þarna á ferðinni mjög lærdómsríkar og djúpar pælingar:



Fallegt, hér eru eldri skilaboð:



Ef ykkur líkar þetta getiði fundið fleiri frá honum á youtube.

Hér er svo eldra efni, þetta fannst mér mjög gaman að hlusta á í heild sinni.  Þeir sem vilja geta fundið það hér

Hér er fyrsti kaflinn:




Það er nefnilega lang mest bara Hollywood sem talar um 2012 sem heimsendi. Langflestir, og langflestar "samsærisþenkjandi" pælingar um þessa ár telja að verið hafi verið að spá fyrir um hina miklu vitundarvakningu. Skrifið bara 2012, Great Awakening á youtube og sjáið hversu mörg vídjó þið finnið. Þau eru eitthvað eins og þessi, yfirleitt frekar falleg og jákvæð:








Leitið bara sjálf, það eru bókstaflega tugþúsundir svona myndbanda í umferð.

Þetta útskýrir betur hvernig þetta tengist Maya dagatalinu:




Samkvæmt kundalini yoga fræðum er 2012 ár mikilla jákvæðra breytinga. Þá sem ekki þekkja kundalini þá er það einhver áhrifa´rikasta hugleiðslu aðferð sem mannfólk hefur lært. Hér má lesa eitthvað um þetta.

Svo lengi sem við ákveðum að taka harða, skýra og hugrakka afstöðu með sannleikanum og kærleikanum, höfum við nákvæmlega ekkert að óttast. Við höfum allt til að hlakka til.

Hugsið ykkur.

Nei í alvöru, hugsið ykkur.

Kannist þið við að þurfa að labba heim til ykkar í vondu veðri í langan tíma? Þó það sé erfitt og leiðinlegt á meðan þá verður heimkoman þeim mun ánægjulegri en þegar við fengum far, eða keyrðum á bíl.

Allur kuldinn gerir það að verkum að við upplifum fegurð og nauðsyn hlýjunnar miklu betur. Við fáum okkur heitt kakó og setjum á okkur teppi. Þið þekkið þetta. Ímyndið ykkur nú þessa tilfinningu þúsundfalt.

Ímyndum okkur hversu fallegt það verður þegar heimurinn verður ekki svona lengur. Þegar allir fá eins mikinn mat og þeir þurfa og maturinn er hollur og næringarríkur. Þegar enginn er látinn svelta til dauða á plánetu fullri af allsnægtum. Þegar tæknin er nýtt til að lágmarka þörf okkar á líkamlegri erfiðisvinnu eða sálardrepandi endurtekningarsömum vinnum. Þegar það er enginn þrældómur, ekkert mansal, engin stríð, engar pyntingar, ekkert þjóðarmorð. Bara friður, vinátta, kærleikur, list, skemmtun, gleði og samvinna.

Ímyndum okkur hversu falleg tilfinningin verður að vita að okkur tókst þetta. Ímyndum okkur svo hversu gaman það verður þegar þeir sem okkur þykir vænt um, og rífast við okkur og gera grín að okkur í fjölskylduboðum, sjá að við höfðum rétt fyrir okkur allan þennan tíma. Við munum auðvitað fyrirgefa þeim, en ég veit að þetta er langþráð tilfinning í hugum marga.

Trúið mér allavega ef þið upplifið það ekki þannig sjálf, þegar nánast öll fjölskylda manns er á móti þessum hugmyndum manns, allir sem manni þykir hvað mest vænt um frá náttúrunnar hendi telja mann vitlausan, auðtrúa og gera lítið úr hugmyndum manns, þá fer þetta að skipta máli.

En auðvitað er það lítill persónulegur sigur, miðað við að heimurinn verði eins fallegur og hann á að vera.

Við vitum að hann á að vera fallegri. Ef þú finnur það ekki þá ertu ekki að hugsa með hjartanu.

Erum við sammála? Þá er kannski kominn tími á næsta skref, og það er að gera ímyndunina að veruleika. Þar spilum við öll okkar hlutverk. Gerðu þitt besta og þó það mistakist, og við deyjum öll í hrikalegri helför. Þá reyndum við allavega okkar besta.

Þú ert hér, hér er núna. Ætlarðu að haga þér eins og fólk í ævintýratímaflakksmyndum sem fer til fortíðar og verður að passa sig að breyta engu, eða ætlarðu að setja þitt strik í reikninginn?

Ef þú ert ekki byrjaður þegar, þá tekur það bara eina einfalda ákvörðun. Byrjaðu að tala. Taktu áskoruninni og láttu í þér heyra! Ekki láta fordóma sem byggjast á fáfræði þagga niður í þér, það er miklu meira í húfi en að við getum látið slíka smámuni hafa áhrif á okkur.

Ég þakka öllum þeim sem þetta lásu fyrir gott 2011, talsverður árangur náðist á árinu og næsta ár verður bara betra. Ég þakka öllum gestum gagnauga fyrir heimsóknir og stuðning. Við erum að gera þetta í sjálfboðavinnu svo endilega hjálpið til með því að dreifa fréttum og myndböndum sem við birtum hér. Það hvetur okkur líka til að vera virkari.

Ísland er okkar vettvangur, gerum allt sem hægt er til að koma þessu landi í hendur fólksins og við getum komið upp nýju samfélags og efnahagskerfi sem gæti verið fyrirmynd annarra byltingarhreyfinga og annarra landa. Látum verða að þessu, fyrsta skrefið er að nógu margir vakni nógu mikið. Þetta eru rétt rúmlega 300.000 manns, ætti ekki að vera svona flókið.

Hjólin eru byrjuð að snúast, höldum okkur fast og ekki beygja útaf. Góða skemmtun um áramótin og gleðilegt 2012: