30. mars, 2012

Ég gerði spurningalista fyrir bróðir minn sem er að gera verkefni fyrir háskólann. Henni lauk með þessari spurningu. Ég birti hér þetta svar mitt en það er tilraun til að uppræta hana í eins stuttu og einföldu máli og mögulegt er.
Hvað táknar hægri og vinstri í stjórnmálum í þínum huga? Vinsamlegast skrifaðu stutta lýsingu hér að neðan.
Tilraun til að þrengja hugsanamynstur fólk inn í box sem er fullkomlega órökrétt til að tryggja staðlaðan og einsleitan skilning almennings á heiminum og stjórnmálum. Skipta fólki í tvær fylkingar sem góla hver á aðra í stað þess að vinna saman að jákvæðum markmiðum. Tvístra okkur til að við sameinumst síður gegn bankaöflunum sem fyrir löngu hafa tekið yfir bæði ríkisstjórnir, fjölmiðla og stórfyrirtæki.
Það skiptir engu hvort eitthvað er ríkisrekið eða einkarekið, þegar ríkið er í einkaeign.
Vinstri og hægri er sitthvor fóturinn á hugmyndafræðilegri kúgun bankaveldisins. Hugmyndafræði sem hunsar grundvallarspurningar um hvernig það er sem fyrirtæki og ríkisstofnanir eiga að vinna.
Eru ríkisafskipti góð? Já eða nei?
Fer það ekki allt eftir því hvernig ríkið er og hversu hliðhollt það er hagsmunum okkar? Hvort stjórnun þess er sanngjörn og opin eða byggist á kúgun og spillingu?
Er frjáls markaður góður? Já eða nei?
Það fer eftir því hvort siðferði á mörkuðum byggist einvörðungu á því að græða á fólki með öllum tiltækum ráðum eða hvort hann er byggður upp á samfélagslega ábyrgum og siðferðislega réttlátum gildum.
Vinstri og hægri skipanin hvetur til þeirra mótsagnakenndu hugmyndar að til þess að vera fylgjandi því að allir fái nóg að borða á plánetu sem er stútfull af mat þurfirðu líka að kaupa partípakkann, þá þarftu líka að vera fylgjandi t.d. því að ríkið sé að skipta sér að einkalífi fólks.
Og ef mér finnst að það eigi að mega selja bjór út í búð þá er ég kominn í lið með hægri, og þá má ég ekki vera á móti stríði, sem af einhverjum ástæðum hefur verið skilgreint sem vinstri nýverið.
Sú staðreynd að hægt sé að svara þessum spurningalista með skýrum um hugmyndum um hvað sé hægri og hvað vinstri er merki um hversu langt þessi hugsanavilla hefur gengið. Öll málefni er hægt að flokka eftir þessum einfalda, ófullkomna skala.
Svona hugsar fólk í alvörunni.
Öll málefni eru í sitthvoru liðinu. Að fólk skuli telja sig geta sagt með vissu að það tilheyri öðru liðinu, og þarmeð samsvari sér með skoðunum eins liðsins, en ekki annars, ber vott um mjög þvingað og forritað hugsunarmynstur sem byggist ekki á sjálfstæðri og einlægri leit að hinu rétta í hverju máli fyrir sig.