Guðjón Heiðar heldur part 2 um seinni heimsstyrjöldina á gullöldinni í foldahverfi í Grafarvogi. Rætt verður um innrásina í Líbýu og afleiðingarnar af henni. Frítt inn, hefst klukkan 22:00,
Capitalism is the Crisis fjallar um kreppur af völdum "kapítalismans" og mótmælahreyfingar sem verða til í kjölfar þeirra. Í myndinni eru lagðar til byltingarkenndar leiðir fyrir framtíðina.
Bíósýningar Gagnauga, Attac og Hreyfingarinnar halda áfram.
Velkomin á kvikmyndasýningu í Grasrótarhúsinu á vegum Gagnauga.is, Hreyfingarinnar, Attac og Occupy
Reykjavík, að þessu sinni varð fræðslumyndin "Thrive: What on earth will it take?" fyrir valinu. 
Opinn vettvangur fyrir þá sem
vilja ræða heimsmálin og hitta annað fólk á svipuðu tíðnisviði og
Gagnauga.is er stillt inn á. Hugað verður að vefsíðunni og vetrarstarfi,
heimildarmyndasýningum og mörgu öðru.
Hreyfingin, Attac og Gagnauga.is bjóða þér í bíó í síðasta sinn á þessum
vetri. Að þessu sinni varð fyrir valinu heimildamyndin Inside Job. Í
upphafi sýningar munu fötur verða látnar ganga um salinn til að vega upp
á móti kostnaði.
Ef að fasistar tækju yfir heiminn, myndir þú berjast gegn því?
Gagnauga.is sýnir Kymatica á Prikinu. Ókeypis inn að venju.

Hreyfingin, Attac og Gagnauga.is bjóða í bíó!
Frábært standöpp í kvöld klukkan 21:30. Látið sjá ykkur!
Það þekkja allir sælkerar á gott grín uppistandarann Bill Hicks. Frábær heimildarmynd sem fjallar um þennan merkilegan mann í kvöld á prikinu kl 21:00. Frítt inn að vana!
Næstkomandi föstudag, 4 febrúar kl 20:00, mun gagnauga.is í samstarfi við Hreyfinguna og Attac á íslandi sýna hugvekjuna Zeigeist III - Moving Forward, eftir Peter Joseph.
Í tilefni af útkomu Zeitgeist - Moving Forward sem var frumsýnd úti um allan heim á laugardaginn ætlar www.gagnauga.is
að sýna Zeitgeist Addendum, mynd nr.2 í seríunni en hún vakti fjölmarga
Íslendinga til meðvitundar um mikilvæg málefni þegar hún kom út á sínum
tíma og var sýnd þrisvar á RÚV eftir sameiginlegt átak almennings.
Þessum viðburði hefur verið frestað. Biðjumst velvirðingar á því!
Næstkomandi þriðjudag, s.s. 30 Nóvember mun Gagnauga.is sýna vel valinn fyrirlestur með hinum umdeilda manni David Icke, sem nefnist "David Icke: Live at the Oxford Union debating society". Þar talar hann í tvo klukkutíma fyrir háskólanema við Oxford háskólann um kenningar sínar byggðar á 20 ára rannsóknum víðsvegar um heiminn.
FACEBOOK VIÐBURÐUR
FACEBOOK VIÐBURÐUR
Í þessum mánuði mun Gagnauga.is virkilega fara út fyrir boxið og teygja ásjónu sýna yfir í hið óþekkta, umdeilda, óhugnalega og óséða. Okkur þykir vert og mikilvægt að sýna fólki allar hliðar þeirra málaflokka sem að síðan birtir, þar sem upplýst ákvörðum um veruleika hvers og eins fæst ekki nema að sem flest öll sjónarhorn á því sem er að gerast í heiminum séu könnuð. 

Heimildarmyndin The Union - The Business Behind Getting High hefur farið sigurför um heiminn. Flestir átta sig á því að kannabisefni eru síður en svo skaðlegri en tóbak og áfengi og er lögleiðing þeirra mannréttindamál. Þeir sem kjósa að nota þau eru stimplaðir sem glæpamenn og dópistar á meðan engum detti í hug að segja það við þá sem nota áfengi, tóbak eða eru háðir öðrum efnum sem sum hver hafa mjög skaðleg áhrif.
Nú tökum við viðbjóðinn sem matariðnaðurinn í Bandaríkjunum er. Þessi mynd ætti að vera okkur Íslendingum víti til varnaðar.

Í október verða heimildarmyndasýningar gagnauga.is haldnar á þriðjudagskvöldum klukkan 9.
Þema okkar í þessum mánuði verða fjölmiðlar, lyfjaiðnaðurinn, matvælaiðnaðurinn og síðan verða stórfyrirtækin tekin fyrir.
Fyrsta mynd mánaðarins heitir "Psywar, the Real Battlefield is your Mind" og fjallar um þann þróaða sálfræðihernað sem vesturlandabúar verða fyrir barðinu á daglega. Vonumst við til að sjá sem flesta fulltrúa fjölmiðlamanna á staðnum en þó einnig þeirra sem verða fyrir áhrifum frá þeim, sem eru töluvert fleiri.
Fyrsta mánuðinn fjölluðum við um nokkrar af þekktustu "samsæriskenningum" sögunnar og sýndu myndirnar þau kvöld fram á hversu mikið af raunverulegum staðreyndum og sönnunargögnum benda til þess að þar hafi átt sér stað og séu að eiga sér stað alvarlegar og raunverulegar blekkingar.
Í þessum mánuði verður ekki nauðsynlegt að grípa til neinna samsæriskenninga. Þetta er allt opinberlega viðurkennd vitneskja og heimildir fyrir þessu aðgengilegar hverjum sem vilja. Það er augljóst að stórfyrirtæki, stjórnmálamenn og hernaðaröfl nota og hafa lengi notað grófar blekkingar í áróðurstilgangi.
Markmið okkar í október er að sýna í heildina þau skaðlegu áhrif sem núverandi kerfi byggt á pýramídastjórnun hefur á alla mikilvægustu þætti lífs okkar. Þær myndir sem við munum sýna í október fjalla um afmarkaða þætti þeirrar stjórnunar og blekkinga sem stuðla í sameiningu að þeirri varhugaverðu stöðu sem heimurinn er í.
Staðan sem við erum komin í á Íslandi núna er bein afleiðing þessa kerfis sem setur valdamikla fjársterka aðila og hagsmuni þeirra í fyrsta sæti og sannleika, heiðarleika, náungakærleik og almenning í það síðasta.