Forsíða
Greinar
Straumar
Fréttir
Viðburðir
Gagnauga, Hreyfingin, Attac
Kvikmyndasýningar
Grasrótarmiðstöðin, Brautarholti 4, 105 Reykjavík
Debtocracy - Hreyfingin, Attac og Gagnauga.is bjóða í bíó í Grasrótarmiðstöðinni
Bíósýningar Gagnauga, Attac og Hreyfingarinnar halda áfram.

Föstudaginn 27. janúar kl. 20.00 verður heimildamyndin Debtocracy sýnd í Grasrótarmiðstöðinni, Borgartúni 4.

Heimildamyndin Debtocracy eftir Katerina Kitidi and Aris Hatzistefano frá árinu 2011 fjallar um skuldavanda Grikklands og leiðir til að glíma við hann sem ekki eru á dagskrá þarlendra stjórnvalda.

Í myndinni er stöðu Grikklands líkt við stöðu Argentínu um aldamótin síðustu og tekið dæmi um Ekvador sem land
sem tók á sínum skuldavanda með öðrum hætti en alþjóðafjármálakerfið lagði upp með. Þá er hugtakið ,,Odious Debt" kynnt til sögunnar.

Að lokinni sýningu verða umræður um myndina og hvaða lærdóma má af henni draga í hinu íslenska samhengi.

Allir velkomnir.

Facebook viðburður

Dagur: föstudagur, 27. janúar
Tími: kl. 20:00
Staður: Grasrótarmiðstöðin, Brautarholti 4, 105 Reykjavík